Persónuverndarstefna
Persónuverndar- og kökustefna
Gildir fyrir P4R.is · Uppfært: 2. nóvember 2026
Efnisyfirlit
- Hvaða gögn við söfnum
- Tilgangur & lagagrundvöllur
- Móttakendur & vinnsluaðilar
- Alþjóðlegir gagnaflutningar
- Geymslutími
- Réttindi þín
- Börn
- Öryggi & atvik
- Sjálfvirk ákvarðanataka / prófílering
- Kökustefna
- Breytingar á stefnu
- Upplýsingar um fyrirtækið
1) Hvaða gögn við söfnum
- Viðskiptagögn: nafn, netfang, heimilisfang, pöntunar-/greiðsluupplýsingar, afhendingarstaða.
- Tæknigögn: IP, vafra-/tækjaupplýsingar, notkun vefs, vefkökur (sjá kökustefnu).
- Samskiptagögn: efni tölvupósta/DM, þjónustubeiðnir, kvartanir.
- Markaðs-/greiningargögn: GA4 mælingar, Meta Pixel o.fl. (einungis með samþykki, þar sem við á).
- Póstlisti: netfang og hvort þú vilt fá fréttir og tilboð frá P4R í tölvupósti.
2) Tilgangur & lagagrundvöllur (GDPR 6. gr.)
- Afhenda vörur/þjónustu & þjónustuver: vinna pöntun, skil/skipti, ábyrgðarmál (samningur).
- Reikningshald & lagaskylda: bókhald, skattskil, varðveisla gagna (lagaskylda).
- Öryggi & misnotkunarvarnir: svikavarnir, tölvuöryggi (lögmætir hagsmunir).
- Greining & tölfræði: GA4 o.fl. (samþykki ef krafist; að öðru leyti samandregin/nafnlaus gögn).
- Tölvupóstur til viðskiptavina: Þegar þú kaupir hjá okkur getum við sent þér fréttir og tilboð um vörur P4R á netfangið sem þú gafst upp við kaupin (lögmætir hagsmunir, í samræmi við heimild laga um fjarskipti til markaðssetningar gagnvart viðskiptavinum). Í greiðsluferlinu er reitur fyrir þetta sem er sjálfgefið hakaður. Viljir þú ekki fá slíkan póst tekur þú einfaldlega hakið af. Þú getur einnig afskráð þig hvenær sem er með einum smelli neðst í hverjum pósti eða með því að senda okkur línu.
- Fréttabréf og endurmarkaðssetning: skráning á póstlista á vefnum og auglýsingamiðun (samþykki, afturkræft hvenær sem er).
3) Móttakendur & vinnsluaðilar
- Vef- og greiðsluinnviðir: Shopify (verslun), greiðslugátt (t.d. Borgun/Rapyd/Stripe), hýsing.
- Flutningur: Dropp (afhending/rekjanleiki).
- Greining/auglýsingar: Google Analytics 4, Meta (Facebook/Instagram) – geta verið sjálfstæðir ábyrgðaraðilar.
- Reikningshald & lögboðnir aðilar: bókari, yfirvöld ef skylt er skv. lögum.
4) Alþjóðlegir gagnaflutningar
Sumir þjónustuaðilar geta unnið gögn utan EES. Við treystum á viðeigandi verndarráðstafanir, m.a. hæfnisákvörðun (t.d. Kanada fyrir Shopify Inc.) og/eða staðlaða samningsákvæða (SCCs) þegar flutt er áfram frá Kanada eða til annarra landa, í samræmi við GDPR.
5) Geymslutími
- Pantanir & reikningshald: minnst 7 ár (lögum samkvæmt).
- Þjónustumál: þar til mál er lokið + hóflegur varúðartími.
- Póstlisti: þar til þú afskráir þig eða dregur samþykki til baka; „opt-out“ varðveitt til að virða óskir.
- Kökur: skv. kökustefnu (mismunandi eftir tegund).
6) Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, gagnaflutningi, að andmæla vinnslu (þ.á m. markaðssetningu), og að draga samþykki til baka. Hafa má samband á p4r@p4r.is til að nýta réttindi. Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).
7) Börn
Þjónustan er ekki miðuð að börnum. Þar sem vinnsla byggir á samþykki fyrir upplýsingasamfélagsþjónustu gildir að á Íslandi telst barn geta veitt gilt samþykki við 13 ára aldur; annars þarf samþykki forráðamanns.
8) Öryggi & atvik
Við beitum tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum (dulkóðun í flutningi, aðgangsstýringar, lágmarksréttindi, eftirlit). Verði öryggisatvik sem felur í sér áhættu fyrir þig, tilkynnum við í samræmi við lög.
9) Sjálfvirk ákvarðanataka / prófílering
Við notum ekki sjálfvirkar ákvarðanir sem hafa lagaleg eða sambærilega veruleg áhrif. Einföld markaðsmiðun getur átt sér stað á grundvelli kökusamþykkis; þú getur hafnað slíkri vinnslu.
10) Kökustefna
10.1 Hvað eru kökur?
Kökur eru litlar skrár sem vistast í vafranum. Nauðsynlegar kökur halda t.d. utan um körfu og öryggi. Ónauðsynlegar (t.d. greining/markaðssetning) eru aðeins virkjaðar með þínu samþykki.
10.2 Samþykki & valkostir
- Við birtum kökuborða við fyrstu heimsókn: Samþykkja allt, Hafna öllu eða Stilla eftir flokkum.
- Í kökuborðanum eru engar fyrirhakaðar gátreitir, engin „cookie walls“, og „scroll“ telst ekki samþykki.
- Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er með því að eyða kökum fyrir p4r.is í vafranum; þá birtist kökuborðinn aftur við næstu heimsókn.
10.3 Flokkar
- Nauðsynlegar: rekstur verslunar, innskráning, körfuviðhald, öryggi.
- Virkni: tungumál/landsvæði, notendastillingar.
- Frammistaða/greining: mælingar (t.d. GA4) – þarfnast samþykkis.
- Markaðssetning: endurmarkaðssetning (t.d. Meta Pixel) – þarfnast samþykkis.
10.4 Dæmigerðar kökur á Shopify
| Nafn | Aðili | Tilgangur | Flokkur | Geymslutími | Tegund |
|---|---|---|---|---|---|
| _shopify_essential / _shopify_s | Shopify | Session/checkout auðkenni; virkni verslunar | Nauðsynleg | Vafralota–30 mín | Fyrsta aðila |
| _shopify_y | Shopify | Grunn-analytics á verslunarvél | Frammistaða | 1 ár | Fyrsta aðila |
| cart, cart_currency | Shopify | Körfugögn og gjaldmiðill | Nauðsynleg | 2 vikur | Fyrsta aðila |
| _orig_referrer, _landing_page | Shopify | Tilvísunarsíða/lendingarsíða | Frammistaða | 2 vikur | Fyrsta aðila |
| _tracking_consent | Shopify | Vistar kökusamþykki notanda | Nauðsynleg | 1 ár | Fyrsta aðila |
| _ga, _gid, _gcl_au | Google Analytics 4 | Aðgreina notendur/lotur; áhorfsmæling | Frammistaða | _ga 2 ár · _gid 24 klst. · _gcl_au 3 mán. | Fyrsta aðila |
| _fbp | Meta | Endurmarkaðssetning/auglýsingamiðun | Markaðssetning | ~3 mán. | Fyrsta aðila |
| localization | Shopify | Vista land/svæði | Virkni | 2 vikur | Fyrsta aðila |
10.5 Þriðju aðilar & flutningar
Greiningar- og markaðstæki (GA4/Meta) geta flutt gögn utan EES. Við notum samþykkisstjórnun og treystum á viðeigandi vernd (t.d. SCCs) hjá þjónustuaðilum. Sjá einnig kafla um alþjóðlega gagnaflutninga.
10.6 Hvernig stjórna ég kökum?
- Afturkalla samþykki með því að eyða kökum fyrir p4r.is í vafranum; þá birtist kökuborðinn aftur.
- Stilla vafra til að hafna eða eyða kökum (getur haft áhrif á virkni).
- Hafna mælingum/auglýsingum hjá Google/Meta skv. þeirra leiðbeiningum.
11) Breytingar á stefnu
Við uppfærum stefnuna þegar þörf krefur. Ný útgáfa birtist hér.
12) Upplýsingar um fyrirtækið
P4R – BTKBoom ehf.
Kennitala: 520226-0280
Netfang: p4r@p4r.is
Instagram DM: @P4RGolf
Svörun: innan 1–2 virkra daga